Algengar spurningar
Hvernig skrái ég kennaraaðgang?
Ef þú ert nýr notandi og vilt fá aðgang sem kennari þarftu að sækja um kennaraaðgang í gegnum slóðina akademian.skola.is/teacher/register. Athugið að eingöngu kennarar geta sótt um aðgang!
Hvað gerist eftir að kennari skráir sig?
Skóla-Akademían fer yfir allar umsóknir og veitir eingöngu kennara aðgang að kerfinu þegar búið er að fara yfir umsókn um aðgang.
Hver getur stundað nám hjá skola.is?
Allir nemendur geta stundað nám í gegnum skola.is sem hafa fengið boð frá kennara sínum.
Hvernig fá nemendur aðgang?
Kennari skráir nemendur í bekki og veitir þeim aðgang í gegnum skola.is.
Hvernig fer námið fram?
Fræðilegt nám fer fram á netinu en verkleg kennsla fer fram í tíma hjá kennara. Námskeið samanstanda af lesefni, myndum, myndböndum og verkefnum.
Þarf ég að kaupa bækur fyrir námið?
Allt nauðsynlegt námsefni er aðgengilegt nemendum á skola.is meðan að námskeið fer fram sem kennari hefur úthlutað til nemenda.
Hentar skola.is nemendum með lestrarerfiðleika eða námsfrávik?
Skola.is hendar sérstaklega vel öllum nemendum þar sem læra má á sínum hraða. Einnig er innbyggð talgervill sem les allan texta. Einnig má stýra hraða á texta sem er lesinn.
Hvernig breyti ég um lykilorð?
Þegar þú hefur fengið aðgang skráir þú þig inn í skola.is og skiptir um lykilorð undir stillingar.
Get ég fengið aðstoð?
Nemendur geta haft samband við kennara sinn og svo má hafa samband með því að senda tölvupóst á skola@skola.is.