Námskeiðin
Vönduð námskeið fyrir öll stig grunn- og framhaldsskóla, sem byggja á hæfni- og matsviðmiðum aðalnámskrár. Námskeiðin eru hönnuð til að efla hæfni nemenda og styðja markvisst við grunnþætti menntunar. Nemendur geta sinnt náminu þegar og þar sem þeim hentar, sem eykur sjálfstæði og námsáhuga. Kennarinn skipuleggur námið og foreldrar hafa betri yfirsýn til að styðja við nám barna sinna og hæfniþróun.
Fjármálalæsi fyrir framhaldsskóla
Fyrir nema á framhaldsskólaaldri. Farið er yfir atriði á borð við bankastarfsemi, vexti, lán og skuldir, fjárhagsáætlun, atferlishagfræði o.fl.
Fjármálalæsi fyrir grunnskóla (unglingastig)
Fyrir nema á efsta stigi grunnskóla. Farið er yfir atriði á borð við sparnað, fjárfestingar, fjármálaöryggi, fjárhagsáætlanir, lán og skuldir o.fl.
Fjármálalæsi fyrir grunnskóla (miðstig)
Fyrir nema á miðstigi grunnskóla. Farið er yfir atriði á borð við neytendafærni, fjárhagsáætlanir, lán og skuldir, hagnýta stærðfræði o.fl.
Fjármálalæsi fyrir grunnskóla (yngsta stig)
Fyrir yngsta stig grunnskóla. Farið er yfir peninga, tölvulæsi, skapandi stærðfræði o.fl. í gegnum leik og lifandi kennsluaðferðir.
Almenn stærðfræði I
(8. bekkur)
Farið er yfir prósentureikning, rúmfræði, jöfnur, brot, töflur og myndrit o.fl. í gegnum leik og lifandi kennsluaðferðir.
Almenn stærðfræði II
(9. bekkur)
Farið er yfir veldi, hringa, algebru, hnitakerfi, tölfræði o.fl. í gegnum leik og lifandi kennsluaðferðir.
Almenn stærðfræði III
(10. bekkur)
Farið er yfir líkindareikning, ferninga og ferningsrætur, rúmmál, algebru, jöfnur, sannanir o.fl. í gegnum leik og lifandi kennsluaðferðir.
Einkakennsla í stærðfræði
Einkakennslan er sérsniðin að þörfum hvers og eins nemanda, með áherslu á að auka skilning, trú á eigin getu og sjálfstraust í náminu.