(9. bekkur)
Um námskeiðið
Hlutverk námskeiðsins í stærðfræði er að stuðla að því að nemendur öðlist hæfni í stærðfræði og búa þeim aðstæður til merkingarbærs náms. Á námskeiðinu eru nemendur virkir þátttakendur í að rannsaka, setja fram og sannreyna tilgátur í stærðfræði. Námskeiðið er hannað þannig að það leiðir nemendur í gegnum ítarlegt efni sem nauðsynlegt er til að byggja upp færni í samræmi við hæfniviðmið sem skilgreind eru í sjö flokkum samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla.
Í gegnum gagnvirk verkefni, skýringar og dæmi er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér stærðfræðilegt tungumál og rökhugsun á markvissan hátt. Námskeiðið býður upp á skipulega uppbyggingu þar sem nemendur fá leiðsögn, endurgjöf og tækifæri til að takast á við raunveruleg stærðfræðileg viðfangsefni, sem styrkir skilning þeirra og sjálfstæði í námi.
Verð: 7.500 kr.
Uppbygging námskeiðsins
1. Talnareikningur
- Negatífar tölur
- Námundagildi
- Prósentur
- Sjálfspróf
2. Stórar og smáar tölur
- Veldi
- Tugveldi
- Sjálfspróf
3. Hringurinn
- Ummál hrings
- Flatarmál hrings
- Hringgeiri
- Rúmfræðiteikningar
- Sjálfspróf
4. Algebra
- Stæður
- Einföldun á stæðum
- Jöfnur
- Formúlur
- Sjálfspróf
5. Einslögun
- Hlutfölll
- Einslögun
- Mælikvarði
- Sjálfspróf
6. Hnitakerfi
- Hnit punkts
- Formúlur og gröf
- Sjálfspróf
7. Tölfræði
- Myndrit
- Miðsækni
- Sjálfspróf
8. Upprifjun
Upprifjun og samantekt.
Skráning á námskeiðið
Skráðu þig hér að neðan, við stofnum kröfu í netbanka og þegar greiðsla berst opnast aðgangur að námskeiðinu.