Almenn stærðfræði III
(10. bekkur)

Um námskeiðið

Hlutverk námskeiðsins í stærðfræði er að stuðla að því að nemendur öðlist hæfni í stærðfræði og búa þeim aðstæður til merkingarbærs náms. Á námskeiðinu eru nemendur virkir þátttakendur í að rannsaka, setja fram og sannreyna tilgátur í stærðfræði. Námskeiðið er hannað þannig að það leiðir nemendur í gegnum ítarlegt efni sem nauðsynlegt er til að byggja upp færni í samræmi við hæfniviðmið sem skilgreind eru í sjö flokkum samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla.

Í gegnum gagnvirk verkefni, skýringar og dæmi er lögð áhersla á að nemendur tileinki sér stærðfræðilegt tungumál og rökhugsun á markvissan hátt. Námskeiðið býður upp á skipulega uppbyggingu þar sem nemendur fá leiðsögn, endurgjöf og tækifæri til að takast á við raunveruleg stærðfræðileg viðfangsefni, sem styrkir skilning þeirra og sjálfstæði í námi.

Verð: 7.500 kr.

Uppbygging námskeiðsins

1. Líkindareikningur
  1. Hverjar eru líkurnar?
  2. Einfaldar líkindatilraunir
  3. Endurteknar líkindatilraunir
  4. Líkur fundnar með tilraun
  5. Sjálfspróf
2. Ferningar og ferningsrætur
  1. Ferningsrætur
  2. Rétthyrndir þríhyrningar
  3. Sjálfspróf
3. Rúmmálsfræði
  1. Strendingar og sívalningar
  2. Pýramídar og keilur
  3. Kúla
  4. Ýmis hagnýt dæmi
  5. Sjálfspróf
4. Stærðfræði í daglegu lífi
  1. Fjárhagsáætlun
  2. Framfærslukostnaður
  3. Samgöngur
  4. Búðu til sultu
  5. Borgar sig að baka heima?
  6. Hvað notar þu mikla orku?
  7. Vegalengd, hraði og tími
  8. Bíll og stærðfræði
  9. Sjálfspróf
5. Algebra
  1. Veldi
  2. Margliður
  3. Þáttun
  4. Ræðar stæður
  5. Sjálfspróf
6. Jöfnur og jöfnuhneppi
  1. Jöfnur
  2. Jöfnuhneppi
  3. Sjálfspróf
7. Sannanir í rúmfræði
  1. Horn
  2. Þríhyrningar
  3. Aljöfnun
  4. Einslögun
  5. Pyþagorasarregla
  6. Sjálfspróf
8. Upprifjun

Upprifjun og samantekt.